12. þáttur. Ólafur Gestur Arnalds
Ólafur G. Arnalds hefur helgað starfsvettvang sinn fræðastörfum á sviði jarðvegs og vistkerfa og kennt ófáum háskólanemanum allt um moldina og mikilvægi hennar. Hann hefur verið málsvari moldarinnar um langt skeið og haft afgerandi áhrif á þekkingu og skilning okkar á þessari dýrmætu auðlind. Enda ósjaldan skrefi á undan samtímanum. Ólafur hefur unnið til verðlauna fyrir fræðastörf sín og gaf nýverið út bókina „Mold ert þú“, stórvirki sem enginn ætti að láta fara framhjá sér. Í þættinum ræða þeir Mummi meðal annars um moldina, sauðfjárbeit og nokkrar af þeim baráttum sem Ólafur hefur háð við stjórnsýsluna til að knýja fram kerfisbreytingar.
Dagskrárgerð. Mummi
Stjórn upptöku. Gunnar Bjarni